Bílastæði

Hvað er málið með þau?  Ég ætla í þetta sinn að ræða um fólk sem kann ekki að leggja í bílastæði.  Djöfull fer það í taugarnar á mér.  Tökum sem dæmi Samkaup Strax á Borgarbraut hérna á Akureyri.  Mér finnst það alveg óeðlilega böggandi þegar það eru 2-4 bílar stopp beint fyrir utan hurðina …. HALLÓ, það eru nóg af bílastæðum þarna fyrir utan! Ég er hreyfihömluð, en samt legg ég ALLTAF í bílastæði þarna úti.  Og í þau allmörgu skipti sem ég hef séð einhvern leggja þarna BEINT fyrir utan búðina, þá hef ég ekki séð nokkuð að því fólki, nema það að þetta eru letingjar (afsakið mig ef ég særði einhvern). 

Ég hef oft verið að pæla hvað fer í gegnum huga þess fólks sem leggur svona beint fyrir utan dyr eða jafnvel fyrir einhverjum, semsagt þannig að það er varla pláss fyrir þá sem leggja í svokölluð bílastæði til að bakka, eða jafnvel hvort að þetta fólk sé að hugsa eitthvað yfir höfuð.  Kannski er það bara vani að leggja þarna og vera fyrir því fólki sem hefur þann heiðarleika að leggja í bílastæði. 

 

Svo lenti ég í einu um daginn.  Oftast þegar ég fer í afmæli, þá reyni ég að flýta mér og vera fyrst á staðinn vegna þess að ég vil ná stæði eins nálægt og ég get, já bílastæði.  Ég veit að þetta kemur svolítið upp á móti því sem ég var að segja hérna áðan, en mér finnst það allt í lagi þar sem ég er hreyfihömluð, bakveik og með barn.  En ég var allavega í afmæli um daginn, sem var haldið í raðhúsi.  Fyrir utan dyrnar eru tvö bílastæði, og ég var þarna í öðru þeirra, ég man ekki hver var í hinu.  Allavega, svo kemur þarna ein ónafngreind manneskja á JEPPA, og leggur BEINT fyrir aftan mig, þannig að ég hef kannski hálfan meter til að komast úr stæðinu.  Vinstra megin við mig var annar bíl og hægra megin var hár kantsteinn.  Og þið vitið nú kannski hvernig þetta er hjá þessum raðhúsum, planið er eins og ein akgrein á breidd.  Af hverju að leggja þarna á miðjum veginum þar sem fólk þarf að komast framhjá til að fara lengra í raðhúsið?  Til hvers að vera fyrir?  Og já, kannski ég taki það fram að það eru fleiri bílastæði hjá þessu raðhúsi sem er ætlað gestum, sem eru  bara ekki ALVEG upp við dyrnar. 

 

Reyndar þá skil ég þessa manneskju vel.  Hún var með nokkur börn með sér, og eitt þeirra var nýfætt, þannig að það var kannski frekar erfitt að fara með þau öll um langan veg til að fara með þau inn.  En hins vegar voru þarna inni nokkrar manneskjur sem höfðu fullt færi á því að passa þessi börn á meðan manneskjan gæti farið og fært bílinn bara í stæði.  Eða þá að þessi manneskja hefði getað tekið makann sinn með, þetta var á Sunnudegi. 

 

Kannski er ég bara að vorkenna mér of mikið, kannski er ég leiðinleg að taka sjálfa mig fram yfir fólk með börn.  Haaa?  Nei, ég er sjálf með barn, og er hreyfihömluð…. Ætli ég geti ekki opnað augu þessa fólks fyrir þessu?  Samt er það kannski hálf asnalegt að biðja alla sem koma í öll afmæli að taka tillit til mín af því að ég er hreyfihömluð.  Kannski yrði bara hlegið upp í opið geðið á mér.  En öll þessi fjölskylda gerir þetta, þau eru 3 í henni sem eru ekki einu sinni með börn, eru bara ein á báti og eru fullfrísk í líkamanum.  Þetta eru systkini og foreldrar manneskjunnar sem ég var að tala um. 

 

Og svo er það eitt sem ég vil taka fram áður en ég kveð.  Tengdamóðir mín er einhver sem mér finndist að fólk ætti að líta upp til varðandi þetta.  Til dæmis alltaf þegar hún kemur í heimsókn til mín, þá leggur hún alltaf Í STÆÐI sem er lengst í burtu frá íbúðinni minni.  Henni finnst hún alveg geta gengið nokkrur skref, og vill frekar taka tillit til þeirra sem þurfa frekar á því að halda að leggja nær.  Mér finnst þetta aðdáunnarvert. 

 

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, ég vona bara að allt þetta fólk fari að hugsa sinn gang. 

 

Og það er hvers manns æðsta boð að leggja mátt sinn allan fram í annars hag.

Sófókles

Áróður

Áður en ég byrja á þessu langa bloggi, langar mig að taka það fram, að þig þurfið ekki að láta ykkur bregða þó að orðið “átt”, semsagt “að eiga”, komi oft fram í þessari bloggfærslu.

Ég hef verið að taka eftir því hvað að er rosalega mikill áróður á íslandi, og örugglega á fleiri stöðum í heiminum.  En ég ætla allavega að tala um þann áróður sem ég hef tekið eftir.  Mér finnst fólk vera allt of mikið að skipta sér að því hvað maður og annar gerir og gerir ekki.  Ætli ég taki ekki bara hvern lið fyrir sig.

Brjóstagjöf :

Brjóstagjöf finnst mér vanmetið fyrirbæri.  Fólk er allt of mikið að hugsa um það, að þú ÁTT að gefa barninu þínu brjóstamjólk fram að 1 árs.  Ef þú gerir það ekki, þá færðu bara á þig þann stimpil, að þú ert vont foreldri. Ég til dæmis varð að hætta með Elmar Blæ á brjósti þegar hann var 2,5 mánaða, einungis vegna þess að ég var ekki frædd nógu vel um brjóstagjöf.  Ég veit samt alveg að ég hefði getað frætt mig um þetta sjálf, en þær á fæðingadeildinni hefðu nú alveg getað sagt mér, 17 ára þá, að eignast mitt fyrsta barn, aðeins til.   Svo þar að auki greindist Elmar með mjólkur-prótein ofnæmi, þannig að ég hefði hvort sem er þurft að hætta með hann snemma á brjósti.

Konur sem ekki gefa börnunum sínum brjóst fyrsta árið, eru rakkaðar niður, og ég hef oft heyrt af mæðrum, sem fá vel að finna fyrir því, og líða eins og öllum finnist þær vera slæmar mæður, einungis vegna þess að þær geta ekki gefið barninu sínu brjóstamjólk, af einni eða annari ástæðu.  Þetta finnst mér tilgangslaust, og algjör óþarfi, líka vegna þess að oftar en ekki vita þeir sem eru að rakka þessar mæður niður, ekki hvers vegna þær geta ekki haft barnið/börnin sín á brjósti.  En svona er ég nú bara.

Magapokar :

Mér finnst nú svosem ekkert að þessum magapokum.  Það er bara svo rooooosalega mikið verið að ræða um þá, og mér finnst þeir eiginlega bara verið ofmetið fyrirbæri.  Sumar mæður tala um þessa poka fram og aftur, og ég er jafnvel farin að halda, að sumar mæður hugsi varla um annað en þessa svakalegu magapoka, svo dæmi megi nefna Mei Tai, Ringasling og Hotslings eða hvað sem þetta nú heitir.  En svona er ég nú bara.

Reykingar :

Reykingar er fyrirbæri sem virðist bara eiga að banna á Íslandi á næstunni.  Það er búið að banna reykingar allstaðar, og þar að auki finnst mér bara allt of illa komið fram við okkur reykingarfólkið.  Ég hef til dæmis alveg tekið eftir því að sumt fólk heldur að reykingarfólk sé bara vont fólk.  Það er ALLS EKKERT verra við okkur reykingafólkið heldur en … hvað á ég nú að segja … fólkið með heilu lungun.  Einhverra hluta vegna hafa allir sem reykja einhverra hluta vegna vanið sig á þennan ósið, og þið sem ekki reykið, þurfið ekkert að vera með neinn bömmer yfir því.  Annað hvort reykjum við eða ekki, svo einfalt er það.

Svo er auðvitað líka til fólk sem skammast lífið endilangt yfir fólki sem reykir, og vitið þig hvað?  Ekki erum við reykingarfólkið að skammast í ykkur sem reykið ekki?  Eigum við það þá eitthvað skilið að við séum rökkuð niður?  Hvaða ástæðu hafið þið fyrir að vera alltaf að skammast í reykingarfólki, og þá sérstaklega fólk sem reykir sjálft.  Mér finnst allt í lagi að segja einhverjum sem ekki reykir, að byrja ekki að reykja, en mér finnst allt annar handleggur að vera kannski með sígarettu í hendinni, og vera að segja þessum og hinum að vera ekki að reykja.

Svo er að eitt enn sem ég vil minnast á í sambandi við reykingarnar.  Fólk sem er að leigja út íbúðir, og tekur það fram að viðkomandi VERÐI að vera reyklaus…… Hvað er andskotans málið með það?  Ég held að það séu nú ekki til margir, sem eru að leigja, sem fara svo bara að reykja inni!  Það er enginn það heimskur að fara að reykja inni í leiguíbúð sem einhver annar á!  Stundum skil ég bara ekki sumt fólk.  En svona er ég nú bara.

Tískufatnaður :

Tískufatnaður er eitthvað sem hefur plagað mig svo lengi sem ég man.  Í dag, og það varð reyndar svona fyrir þónokkrum árum, þá bara ÁTT ÞÚ að ganga í tískufötum, annars er þú bara fátæklingur, aumingji, asnalegur og eða ömurlegur.  Í dag virðist það vera rosalega vinsælt að hugsa bara um útlitið og fötin sem maður gengur í, þ.e.a.s. hvaða merki er á flíkinni.  Fyrir mér er það þannig, að mér er sama hvaða merki er á flíkinni, eða hvar ég kaupi hana, svo lengi sem hún er þægileg, og hún má alveg vera flott.  En ég get alveg keypt mér t.d. bol í Hagkaup, frekar en að fara í Gallerí 17 eða Fargo til þess að kaupa ljótari bol á 20 þúsund kall meira.

Ég hef séð alls kyns gerðir af fatnaði.  Ef ég tek dæmi, þá var allt hræðilegt hérna um Versló.  Mér leið eiginlega bara eins og ég væri komin í einhvern Sirkús.  Fólk klæddi sig eins og ég veit ekki hvað, en reyndar skilst mér að það hafi verið eitthvað bjánalegt þema í gangi.  Og svo veit ég heldur ekki hvort það er skárra að sjá manneskju í skærgulum latexgalla, eða í 200 þúsund króna outfitti sem er keypt í Levi’s eða Imperial.  Ég var líka búin að frétta að það sé ekki líft að fara á almennilegt djamm fyrir sunnan þessa dagana, það líta allir út fyrir að regnboginn hafi gubbað yfir þá/þær/þau (bara svona svo ég vitni í orð Perlu).  EN jú jú, það eru örugglega flott föt í þessum búðum líka, ég er samt bara að benda á öll ljótu fötin sem fást í þessum búðum (sem er megnið af fötunum). En svona er ég nú bara.

Megrunarkúrar:

Hjálpi mér allir heilagir, hvar sem þeir nú eru.  LR henning kúrinn er út um allt!!!  Og það er ekki einu sinni hægt að lesa sjónvarpsdagskrána, allstaðar eru myndir af fólki sem léttist um þetta mörg kíló á þetta löngum tíma … og já, mér er alveg sama.  Það er algjör óþarfi að allir séu 160-190 á hæð og 10-40 kíló.  Svo er það Hydroxycut, eða hvað sem þessi viðbjóður nú heitir.  Þetta er stórhættulegt.   Ég hef heyrt af nokkrum tilvikum, þar sem fólk hefur þurft að leggjast inn á spítala vegna þess að það var að taka þessi “Lyf” eða hvað sem þetta nú er.  Hugsar fólk virkilega bara um það að þú ÁTT  að vera ógeðslega horaður, helst þannig að það sé hægt að telja rifbeinin í þér?  Aldrei myndi mér detta það í hug að háma í mig töflur til að grennast.  En svona er ég nú bara.

Útlit :

Ég skil það nú alveg að útlitið skiptir alla máli, eða marga, að minnsta kosti upp að vissu marki.  Það er bara rosalega misjafnt hvar þetta “mark” er. Ég hef séð konur mála sig undir stýri, stelpur standa heillengi fyrir framan spegil inni á klósetti á skemmtistöðum og margt fleira, nefndu það bara.  Mér finnst allt of margir einblína bara á útlitið, bæði á sjálfum sér og öðrum.  Auðvitað er gaman að líta vel út, en það að útlitið sé það eina sem fólk hugsar um í lífinu, slær mig algjörlega út af laginu.  Ég veit alveg um fólk sem hugsar bara um útlitið, og tekur útlitið fram yfir ALLT annað í lífinu.  Svo er auðvitað líka til fólk sem vilja ekki þekkja mann og annan, vegna þess að hann/hún er ekki nógu sæt/ur eða myndarleg/ur. Ég er alls ekki að gefa í skyn að vinir mínir séu ljótir, alls ekki, en ég myndi nú samt ALDREI láta mér detta í hug að hugsa “nei, þessi er ekki nógu sætur til að geta verið vinur minn”.  Hahahaha .. það fær mig nú bara til að skella uppúr.  Mér finnst fólk hugsa allt of mikið um það hvernig maður lítur út.  En svona er ég nú bara.

Mataræði :

Hvernig er heimurinn að verða í dag?  Núna bara ÁTTU að éta BARA grænmeti, og þetta og hitt sem er hollt.  Ég skal nú bara segja ykkur það, að ég ét bara það sem mér finnst gott, og já, samt er ég í kjörþyngd, og næstum því fyrir neðan hana.  Mér finnst vera allt of mikið um það að þú eigir bara að éta grænmeti og allt þetta gums, svo lengi sem ekki er eitt einasta sykurkorn á því, eða fita.  Í dag áttu bara að fara eftir hollustunni, og þetta er algjörlega að fara með mig.  Mér finnst fólk næstum því böggandi sem étur bara salatblöð og drekkur bara vatn. Ef svona fólk kemur til mín, þá getur það bara étið það sem úti frýs.  Og hvað er andskotans málið með Danska kúrinn?  Að fylgjast með hvað maturinn er þungur sem þú ert að láta ofan í þig …. “já, látum okkur nú sjá, ég á að éta 100 gr af kjöti, 400 gr af grænmeti og eina kartöflu sem verður að vera 47 gr, þetta er það sem ég borða í kvöldmat”.  Hahahaha … ALDREI!  Mér þykir vænna um sjálfa mig en svo að ég fari að pína sjálfa mig með einhverri svona bölvaðri vitleysu.  En svona er ég nú bara.

Uppeldi :

Díses kræst … hvernig er þetta orðið í dag?  Fólk sem lærir að ala börnin sín upp í gegnum bækur … fólk sem BARA eftir því sem fagaðilar segja .. fólk sem öskrar á börnin sín allan daginn, og ég veit ekki hvað og hvað.  Af hverju fer fólk ekki bara eftir innsæginu, og leitar svo aðstoðar með börnin (til fagaðila) ef þess þarf? Þarf fólk að fara eftir öllu sem það les í bókum, eða sér í þættinum “Supernanny” ?  Mér finnst þetta vera svo út í hött.

Svo hef ég mikið verið að lesa á einum vef, og þar er oft verið að ræða um uppölun, og þar er einmitt oft verið að tala um að þú EIGIR að byrja að setja barnið þitt á koppinn þetta gamalt, ekki seinna en það, að þú EIGIR að gefa því eingöngu brjóstamjólk fyrstu 6 mánuðina, að þú EIGIR að svæfa það á þennan hátt en ekki annan, að þú EIGIE að skamma það á þennan hátt en ekki annan, að þú EIGIR að láta það hætta með bleyju þetta gamalt, að þú EIGIR að færa það yfir í venjulegt rúm þetta gamalt, að þú EIGIR að gefa því þetta að borða, en ekki þetta, að þú EIGIR að leyfa því þetta en ekki þetta, og vitið þið, ég get haldið endalaust áfram.  Megnið af því sem er hér á undan, er það sem fólk er að segja, og hefur heyrt frá fagaðila.  Nema hvað, enginn af þessum fagaðilum segja það sama, eða mæla með því sama!  Ég hef oftar en ekki séð rifrildi útaf því að þessi fagaðili sagði þetta, en hinn sagði hitt.  Ég skil ekki alveg hvað er að koma fyrir Ísland í dag.

Mér persónulega finnst að fólk eigi bara að ala börnin sín upp eftir því sem því finnst, ekkert vera BARA að hlusta á hvað þessi og þessi segir.  Börnin eru jafn misjöfn og þau eru mörg, en auðvitað er gott að vita af þessu og hinu, eins og til dæmis það að meltingarfæri barna eru víst ekki fullvaxin fyrr en um 6 mánaða, sem til dæmis skýrir út af hverju það er MÆLT með því að barnið fái eingöngu brjóstamjólk fyrir þann tíma.  En vitið þið hvað …. það er líka til svolítið sem kallast þurrmjólk, sem er næst best á eftir brjóstamjólkinni, og hún gerir börnin ekkert heimskari eða neitt.  Það er alveg rétt að það er best fyrir barnið að gefa því brjóstamjólk, en hins vegar þá eru þurrmjólkurbarna-foreldrar ekkert vondir þó að börnin fái þurrmjólk.  En þetta er svona já, það sem ég hef verið að pæla.  Og enn og aftur segi ég, ég er bara svona. =)

Ég vona að sem flestir hafi haft gaman af því að lesa þetta, þetta eru bara hlutir sem ég hef tekið eftir, og sumir hafa meira að segja farið í taugarnar á mér.

Spakmæli dagsins :

Að koma röð og reglu á lífið er jafn einfalt og slá strengi trompetsins eða koma röð og reglu á vatnið. 

Bætt við þann 31.ágúst 2008 klukkan 13:33 :

Ahhh skrambinn!! Ég gleymdi einu.  Og það eru taubleyjurnar.  Það er endalaust verið að reyna að fá fólk til að skipta yfir í taubleyjur, pappírsbleyjurnar eru bara hreinasta mengun, það er bannað að henda mannasaur út í náttúruna og svo eru pokarnir sem flestar pappírsbleyju-mömmur setja kúkableyjur í, svona 300 ár að eyðast …. SO WHAT?  Ég myndi ALDREI nenna að hafa fyrir því að vera við þvottavélina allan daginn til þess að þvo þessar bleyjur.  ALDREI!

Svo hef ég oftar en ekki heyrt af því að börnin séu að fá alls kyns útbrot og nappy rash á sig útaf þessum tauleyjum, og ég myndi bara alls ekki nenna þessu, ég er mjög sátt með Pampers og Libero.  Ég myndi heldur aldrei vera að kaupa Euroshopper bleyjur eða eitthvað þess háttar handa Elmari, þó svo að þær séu 2 krónum ódýrari eða eitthvað, ég vil það besta fyrir barnið mitt.   Eeeeen nóg komið af þessu, nema kannski það, að ég þoli ekki þetta vesen og þennan áróður útaf taubleyjum, mikið einfaldara að kaupa einnota bleyjur úti í búð.

Karlmenn

Hvað er málið með þá?  Hvers vegna eru þeir eins og þeir eru?  Hver fann þá upp?

 

Ég hef sjaldan skilið, og aldrei botnað neitt í þeim.  Þeir eru svo óútreiknanlegir að það er ekki eðlilegt!  Karlinn minn til dæmis er núna búinn að kaupa sér einhvern eldgamlann bíl sem ég er farin að halda að hann sé ástfanginn af.  Hann eyðir nánast hverri einustu stund í honum, að gera við hann eða eitthvað þannig.  Bíllinn er sem betur fer að verða tilbúinn, þannig að þetta fer að verða búið.  Hann er núna búinn að vera í sumarfríi í 2 vikur, og á eina eftir, og ég hef lítið sem ekkert séð hann í þessu fríi hans, nema rétt í kvöldmatnum og þegar við förum að sofa.  Hann þarf að fara með bílinn sinn í skoðun á morgun, og þá á hann að vera tilbúinn, sem betur fer, og þá er vika eftir til að eyða með okkur fjölskyldunni!  Alveg fráleitt!

 

Svo geta þeir sjaldan komið með réttu orðin á réttum stundum, og þá er ég ekki að vitna í neitt eitt atvik, þeir eru bara svona.  Snúa út úr eða reyna að tala um eitthvað annað þegar maður þarf virkilega að tala við þá.  Þeir hugsa líka svo mikið BARA um sjálfan sig, að mér bara finnst það ekki eðlilegt.  Stundum held ég að flestir karlmenn séu skapaðir til að vera vitlausir.  Það er líka svo margt óeðlilegt sem þeir gera.  Eins og til dæmis þegar þeir taka upp á því að hunsa mann, en hafa samt alls enga ástæðu til.  Þá er ég samt ekki að tala um karlinn minn, ég man ekki eftir að hann hafi hunsað mig nokkurn tíma, en ég þekki samt svoleiðis gaura.

 

Ég veit samt ekki hversu mikið ég get verið að setja út á þá.  Það eru örugglega til einhver grey þarna úti sem eru alveg ágæt, en ætli þeir séu ekki algjör fífl stundum líka.

 

Ekki taka þessu samt þannig að þetta sé bara um karlinn minn, égvar alveg með aðra í huga þegar ég skrifaði þetta.  Ég hef ekkert mikið að setja út á karlinn minn, annað en þetta bílavesen hans.  Ætli hann þurfi ekki að finna sér eitthvað annað vesen þegar þessi bíll er búinn, það þarf alltaf að vera eitthvað.  Gæti vel verið að ég hendi honum bara á dyr einhvern daginn, hver veit =Þ

Spakmæli dagsins :

Betra er kjánum að vera stjórnað en að stjórna.

Demókrítos frá Abderu

Fólk sem hjólar á veginum.

Hvað er málið með það? Veit fólk ekki að það eru til gangstéttir? Djöfull þoli ég það ekki þegar fólk er bara að hjóla úti á miðjum vegi þegar það er gangstétt við hliðina á veginum. Ég hef oftar en ekki lent í því að keyra næstum því á mann á hjóli, bara vegna þess að hann gat ekki bara verið á gangséttinni! Alveg óþolandi!

Svo er það líka annað. Fólk sem fer út að hjóla með börnin sín, til dæmis fólk sem er með svona barnastól á hjólinu sínu, sem notar ekki hjálm. Ef barnið á að læra að það eigi að vera með hjálm, þá þarf foreldrið líka að vera með hjálm á hausnum. Ég sá konu um daginn sem var að hjóla með barnið sitt í svona barnastól, barnið var með hjálm en konan ekki. Mér blöskraði svo, að mér var skapi næst að stoppa bílinn og segja konunni að redda sér hjálm líka. En ég gerði það ekki, ég var að flýta mér.

Ég er til dæmis núna um mánaðarmótin að fara að kaupa hjálma handa okkur svo við getum farið út að hjóla, og ég ætla ekki að láta mér detta það í hug að kaupa ekki hjálm á sjálfa mig. Ég ætla sko að kenna Elmari það að ef fólk er að hjóla, þá á það að vera með hjálm. Þannig sýnir maður gott fordæmi. Vonandi hugsa fleiri svona.

Annars þá langaði mig bara að nöldra um þetta, ég veit að þetta er ekki langt blogg. Enda er líka langt síðan ég nöldraði síðast ;)

Spakmæli dagsins :

Í öllu er skammtur af öllu nema hug, sem þó er líka í sumum hlutum.
Anaxagóras frá Klazomenum

Bitrir nágrannar

Hvað er málið með þá? Ég persónulega skil það ekki. Allavega, ég ætla að segja ykkur sögu.

Við héldum upp á 1 árs afmælið hans Elmars síðastliðinn mánudag. Svalirnar okkar eru fullar af drasli, þannig að við ákváðum að leyfa bara fólki að reykja (þeir sem reykja) útidyramegin. Sonur nágrannana var sofandi úti í vagni. Vagninn var vel lokaður og vindáttin gerði það að verkum að það fór alls enginn reykur í áttina að vagninum. Við ætluðum samt að ræða við nágrannana fyrst.

En það var mikið stress í gangi og ég ákvað að fara út og fá mér eina sígó, og allt í lagi með það. Ég passaði mig á því að blása reyknum EKKI í áttina að barnavagninum, en þegar ég var svona hálfnuð með sígarettuna, þá kom tussan út (kellan sem býr hérna við hliðina á) og fór að öskra á okkur, og sagði að við þyftum að fá leyfi hjá henni ef við ætluðum að reykja þarna megin. Okay ….. þetta er sameiginlegt (pallurinn eða hvað þetta nú heitir), ég var undir berum himni, og hún á ekkert meira í þessu en við! Hvað er málið?

Ég skil hana nú ósköp alveg, að vilja ekki að við reykjum hjá barninu hennar, en það að við þurfum að biðja hana um leyfi ef við ætlum að reykja þarna megin, er alveg út í hött! Getur hún þá ekki komið yfir til okkar og fengið leyfi fyrir því að barnið hennar fái að sofa þarna úti? Það er alveg það sama! Svo talaði hún eitthvað um það að hún ætlaði að fara niður og spurja út í reglurnar …… HALLÓ! Það stendur hvergi í reglunum að við megum ekki vera þarna úti, og það stendur hvergi í reglunum að hún eigi eitthvað meira í “pallinum” heldur en við! Hún getur ekki bannað okkur að vera þarna úti.

Við erum reyndar að pæla í að hanna bara stiga niður af svölunum þannig að við séum bara alls ekkert fyrir þeim!

En já. Ég sendi þeim afsökunnarbréf. Þau hafa ekkert látið á sér bera síðan, sem mér finnst skrýtið, því mér finnst allt í lagi að þau komi yfir og ræði um þetta við okkur, allavega sýni smá viðbrögð. Ég veit ekkert um það hvort þau hafi lesið þetta eða ekki. Og já, eitt enn. Ég er að bíða eftir að hún biðji okkur afsökunnar líka. Mér fannst hún líka koma mjög illa fram við okkur, sérstaklega í sambandi við það að við eigum að fá leyfi hjá þeim. Hvað halda þau eiginlega að við séum? Halda þau að við séum að leigja og þess vegna megi þau koma fram við okkur eins og þeim sýnist? Ég held nú ekki! Við erum að kaupa íbúðina okkar, og hún getur sko ekkert gert til að banna okkur eitt né neitt. Ef hún er að reyna að losna við okkur úr húsinu, þá er það bara hún um það. Við erum ekki að fara neitt!

Og já, eitt enn. Það er nóóóóg pláss á svölunum þeirra fyrir barnið þeirra. Ég setti Elmar Blæ út á svalir (í vagni auðvitað) á föstudaginn, og sýndi það og sannaði að það er hægt að leyfa barninu sínu að sofa þar. Haha! Suckers!

En segið mér nú kæru vinir, finnst ykkur nóg að ég biðji þau afsökunnar, eða ættu þau að biðjast afsökunnar á sinni framkomu líka? (Reyndar kom hann ekkert nálægt þessu, hún kom bara út, öskrandi og æpandi, og pottþétt með tussuverki líka). Mér finnst ég líka eiga rétt á afsökunnarbeiðni.

Spakmæli dagsins :

Frægð og æska samtímis - það er of mikið fyrir dauðlegan mann.

Arthur Schopenhauer

 

Buff

Hvað er málið með þau?  Af hverju að vera með þetta á hausnum?  Til hvers að leyfa börnunum sínum að ganga um með þetta?  Hvað er svona rosalega flott við þetta?

Ég hef aldrei fengið nógu góð svör við þessum spurningum mínum hérna fyrir ofan.  Ég fékk svona buff innum bréfaljúguna hjá  mér í dag, og ég hélt að ég myndi springa, og btw, buffið var merkt Rúmfó!  Elmar á eitt svona buff fyrir, og ég ætla aldrei fyrir mitt litla líf að leyfa honum að láta sjá sig með þennan viðbjóð.  Mér finnst þetta hræðilega ljótt, og asnalegt, og ég skil ekki tilganginn með þessu.  En það gæti reyndar verið að ástæðan fyrir því að ég þoli þetta ekki sé sú, að föðursystir mín heitin var oft með svona klút á hausnum.  Blessuð sé minning hennar.

En já, svo ég tali nú endalaust í hringi ….. af hverju í fjáranum að láta börnin sín hafa þennan hrottalega horbjóð? Ég bara spyr.  Mig langar að fá góð svör við þessu, og endilega rökstyðja líka ;)   Þessi viðbjóður hlýtur nú að fara að detta úr tísku, þetta er búið að vera svo lengi.  Maður getur ekki einu sinni fengið frið við að versla, það er alltaf einhver með þetta ógeð á hausnum.  HALLÓ FÓLK! ÞETTA ER LJÓTT!!

En allavega, ég þakka þeim sem hlýddu, og endilega commenta kæru vinir.

Spakmæli dagsins :

Vertu ekki daufheyrður fyrir ráðum þér eldri og reyndari manna, sækstu heldur eftir þeim, því fjöldi ungra manna steypa sjálfum sér á höfuðið með oftrausti á sjálfum sér, með þvi að vera of “smart”.
George H.F. Schrader

Votta Jehófar eða hvað þetta nú heitir.

Hvað er málið með þá?  Ég persónulega hef ekkert á móti trúnni þeirra, fólk má trúa á það sem það vill.  Ég persónulega er trúleysingi, eða svona nánast, ég trúi á hjálparandana sem er “hinum megin” eins og það er kallað.  En mig langar að segja ykkur sögu.

Það kom kona til mín um daginn, sem vogaði sér að dingla þegar Elmar svaf á sínu græna eyra.  Hún rétti mér einhvern bréfsnepil, og vildi endilega fá mig á eitthvað svona “gethering” og blablabla.  Ég sagði konunni bara eins og er, að ég sé trúleysingi og ég myndi örugglega ekki mæta.  Hún tók því ekkert illa, en vildi samt endilega að ég myndi kíkja og sjá hvað færi þarna fram hjá þeim.  Svo (þetta er það sem mér finnst mest sjokkerandi og móðgandi) bauðst hún til þess að koma aftur til mín seinna til að RÆÐA um trúleysina mína.  ÉG HELD NÚ EKKI!  Það er eins og að ég megi ekki vera trúleysingi í friði ….. ótrúlegt þetta fólk.

En hins vegar langar mig að taka það fram að góður vinur minn en votti, og ég vil alls ekki að neinn taki þetta neitt til sín, þetta var nú bara ein kona.  Ég hef ekki á móti neinu sem fólk trúir á, og ég er bara glöð fyrir hönd þess fólks sem trúir yfir höfuð á eitthvað =).

Spakmæli dagsins :

Fullkomin vinátta er vinátta góðra manna sem eru gæddir sömu dyggðum, því þeir óska hvor öðrum heilla af því þeir eru góðir og þeir eru góðir í sjálfum sér. Þeir sem óska vini sínum heilla sjálfs hans vegna eru mestir vinir, því þeir gera þetta eðli sínu samkvæmt en ekki tilfallandi. Þess vegna endist vináttan svo lengi sem góðleiki þeirra og dyggð endast.
Aristóteles

Nettó vs. Bónus.

Jæja, ætti maður að fara að nöldra um þetta? Ég hata Bónus. Það er leiðinlegt að fara þangað inn, það er alltaf svo óeðlilega mikið af fólki þar inni, útaf öllu fólkinu þar virðist vera geðveikt þröngt, og ég get ekki sagt að það séu góð gæði á vörunum þar. Þegar ég flutti að heiman, fór ég að versla í Bónus. En ég gafst upp þegar ég var búin að kaupa útrunninn mat nokkuð oft. Svo var alltaf verið að færa körfuna mína eitthvað út í rassgat, og ekki fært hana aftur til baka. Djöfull þoli ég ekki svona fátæklinga sem geta ekki einu sinni verið kurteisir! Ef ég færi körfu einhvers annars til að komast framhjá henni, þá færi ég hana auðvitað til baka. Eðlilega! En þetta skítuga fólk sem verslar í Bónus hefur ekki einu sinni tök á því að færa körfurnar til baka!

Hey, svo er það annað. Fólk er alltaf að tala um það að það sé svo rooooosalega gott og ódýrt að versla í Bónus. Ég hef ekki séð eina EINUSTU breytingu á þyngd veskisins eftir að ég fór að versla í Nettó, sem er by the way miklu betri, rúmmeiri og skemmtilegri búð. Maður kemur þarna inn, starfsfólkið er brosandi, nóg pláss fyrir mann til að versla, enginn troðningur og maður fær ekki útrunninn eða skemmdann mat. Ég fór til dæmis í Nettó í dag, og þegar ég kom að kassanum var rosalega glaðleg kona að afgreiða mig. Ég fór þá að hugsa um það hvað það væri nú gott að koma inn í þessa búð, annað má nú segja um blankheitabúlluna Bónus. Ég tek sko gæði fram yfir verð, þó að það sé varla munur á því að versla í Nettó eða Bónus (þá er ég að tala um verðmun).

Svo er það eitt enn. Í hvert skipti sem ég steig fæti mínum inn í þessa saurugu búð, þurfti ég að fara í Nettó eftirá, til að kaupa það sem var EKKI TIL í blankheitabúllunni. Það var aldrei hægt að kaupa venjulegt nautahakk, bara svínahakk, og þessi ljóta búð selur ekki eina barnamatinn sem Elmar Blær mátti fá á tímabili. Það var líka ein af ástæðunum af hverju ég flutti mig úr blankheitabúllunni yfir í gömlu góðu Nettó búðina =).

Spakmæli dagsins :

Í rannsóknum í heimspeki verðum við að byrja leikinn á að nálgast vandann blátt áfram. Við verðum að láta okkur það eftir að verða furðu lostin af staðreyndum sem andlega heilbrigt fólk gengi að sem vísum. - John R. Searle.

Snípstutt pils.

Hvað er málið með þau?  Hverjum datt í hug að framleiða þau? Hvaðan kemur þessi hugmynd?  Af hverju að hanna pils sem er enginn tilgangur með að vera í?  Ég persónulega myndi nú bara ganga um á nærbuxunum frekar en að láta sjá mig í svona pilsi.  Nærbuxurnar koma bæði uppúr og niðrúr, og þetta er alveg hræðilega ljótt.  Plús það að ef einhver fer út í þessu, þá endar hann heima með blöðrubólgu.  Ekki fatta ég.

En tökum sem dæmi, stelpur sem eru of ungar til að komast inn á skemmtistaðina.  Þær fara út í þessum “fatnaði”, komast svo ekki inn á staðina, og enda svo með því að vera að drepast úr kulda einhversstaðar í einhverju húsasundi, af því að þær ákváðu að fara í lítil, ekki svo hugguleg pils, og eru þar að auki of ungar til að drekka og fara inn á þessa staði.  Ég skil ekki af hverju fólki langar til að fara svona klætt út.  En eitt er þó víst að ég mun ALDREI kaupa mér svona pils.

Spakmæli dagsins :

Það eru alls engin siðferðileg fyrirbæri til - heldur aðeins siðferðileg túlkun fyrirbæra - Friedrich Nietzsche

 

Auglýsingar.

Hvað er málið með þær?  Hafið þið einhvern tímann pælt í þeim?  Það er framleitt alveg fullt af auglýsingum, útum allan heim.  Íslandi, Danmörku, Kuala Lumpur, nefndu það bara.  En hérna á Íslandi hefur það komið fyrir að það eru sýndar auglýsingar í sjónvarpi sem þjóðin hefur ekki tekið alveg opnum örmum.  Eins og til dæmis “3G” auglýsingin frá Símanum.  Sú auglýsing olli því miður einhverju fjaðrafoki að mér skilst.

En svo eru líka til öðruvísi auglýsingar.  Það er bara hjá fólki á aldrinum 16-20, þá er 20 ára alveg í hæsta lagi, því flestir tvítugir eru orðnir nógu þroskaðir til að vera ekki með svona bjánalegar auglýsingar.  Þetta eru auglýsingar, og upplýsingar, sem öllum er sama um og hlutir sem fólk á ekkert að vera að auglýsa.  Um víð og dreyf sér maður fólk sem skrifar um það hvað það sé þunnt.  Þetta er bara athyglissýki og sýniþörf í fólki, og þetta er ekki eitthvað sem heilvita fólk auglýsir.  Þetta er svona svipað og ég myndi fara að upplýsa ykkur um það einhvern tímann að ég sé á túr.  Eða að ég hafi verið að ríða.  Þetta er bara eitthvað sem kemur fólki ekkert við, en jú jú, það er alveg hægt að segja fólki að maður sé þunnur, en það að vera að skrifa þetta útum allt er ekki eitthvað sem heilbrigt fólk gerir.  Hvað ef ég myndi nú hanna alveg flennistór skilti, og skella þeim upp útum allan bæ næst þegar ég fer á túr, og skrifa á þau “Agga er á túr”.  Væri það ekki flott?

Annars þá er þetta bara eitthvað sem er búið að vera að angra mig, því að eins og ég hef sagt hér áður, þá er þetta ekkert annað en sýniþörf og athyglissýki í leiðinlegu fólki.

Spakmæli dagsins : Aldrei mun veröld öðlast frið, aldrei styrjöld af borgum létta, eigi vopnin að semja sátt. - Evripídes.